4x3 á flugi
Jeppa og sleðaklúbburinn 4x3 á flugi Vík í Mýrdal
Leyniþjónustan upplýsir....
..að það hafi ekki tekið nema sjö
tíma að komast á blót
..að það þyki bara fínt
..að heimamenn séu eitthvað linir
..að það hafi þurft að fá mann frá
Höfn til að brauta
..að sumir hafi þó frekar setið
fastir útí móa frekar en að elta
patrol för :)
..að pattinn hans Helga heiti nú
blái kafbáturinn
..að það hafi kona mætt á bíl í
þorraferð
..að hún hafi bölvað því stöðugt að
vera ekki með nógu stórar túttur
..að það verði komið í lag fyrir
næstu ferð :)
..að blót hafi verið skemmtilegt
..að sumir hafi hreinlega grátið af
gleði :)
..að gúrkur séu ekki bara ofaná
brauð
..að þær séu líka góðar með
rjóma!!!
..að sönnunargögnin verði bara
sýnd útvöldum
..að páskaunginn sé hægfara
..að hann hafi ekki komist heim
fyrr en undir morgunn
..að kannski hefði bara verið
sniðugt að gista :)
..að það sé stillanlegur
tölvukubbur í Ford
..að hann hafi verið settur í botn
..að Olíufélagið hafi ákveðið að
greiða út arð á mánudaginn :)
..að Einar Karl viti ekkert hvað
gerðist í ferðinni
..að hann hafi horft á DVD alla
helgina
..að þetta sé fínt :)
Tilkynningar
og nýtt efni.
Síðan eru liðin mörg ár...
Fyrsta blótið og síðan í fyrra, mætti halda að
myndatökubúnaðurinn hafi batnað með árunum :)  
09.04.2010
Nú væri gott að eiga jeppa, enda allt sem flýtur á snjó verið dregið fram til að komast á
gosstöðvarnar og búið að vera nóg að snúast.
Nú eiga allir félagsmenn að vera búnir að fá rukkun í heimabankann fyrir félagsgjöldum.  Ef það
hefur ekki borist hvet ég menn til að hafa samband.





















03.03.2010
Þá er afstaðið vel heppnað blót og held ég að allir séu bara sáttir.  Stórt takk til Jósa fyrir að koma
sterkur inn í nefndina þegar Gýmirinn forfallaðist og til Þráins og Einars sem sýndu enn einu sinni
hvað gítarleikarar eru ómissandi í svona ferðum.
Sá sem fór heim á inniskónum mínum kemur þeim kannski til skila :)
Annað:
Jósi er orðinn formaður klúbbsins og óskum við honum til hamingju með það.
                                                                                                                   
Halldór




























22.02.2010
Þá er að borga fyrir blót.
Verðið er 3200 fyrir blót og 1500 fyrir gistingu, á mann.
Þetta skal leggjast inn á 317-26-2460 kt. 480207-2460 fyrir kl 16 á þriðjudag.
Vinsamlegast látið berast.

Nefndin.


07.02.2010
Þorrablót 4x3 verður haldið í Hólaskjóli laugardaginn 27 febrúar
Að vanda verður glatt á hjalla og margt brallað, það er að segja ef við fáum snjó.
Halldór, Gýmir og Þráinn eru háttvirt þorranefnd og eru farnir að taka við borðapöntunum.

Helstu fréttir af aðalfundi eru að Gýmirinn lætur af störfum og meistari Jóhannes (Jósi) kemur í
hans stað.  Stjórn á hinsvegar eftir að skipa með sér verkum þannig þannig að verkaskiptingin
verður tilkynnt síðar :)
Félagsgjöld hækka lítillega eða í 1000 kr en verða áfram 500 fyrir rásina.  Hinsvegar var samþykkt
að byrja að rukka í gegnum heimabanka þannig að það birtist hjá ykkur fljótlega.  Ætla að henda
pósti á alla félaga með nánari útlistun á þessu.
Annars á bara að halda áfram á svipuðum nótum.


24.01.10
Jæja, 2009 var í daufara lagi í klúbbstarfinu og skrifast það eflaust á marga hluti.
Fyrir mitt leiti verður að viðurkennast að neistinn er vissulega ekki jafn bjartur eftir 10 ára
stjórnarsetu og hlutirnir farnir að skrifast meira á skyldurækni heldur en annað.
Þótt afmæli klúbbsins sé vissulega ánægjuefni þá held ég að það sé tímabært að taka umræðuna
um framtíð, stefnur og hverjir vilja halda uppi keflinu af áhuga en ekki kvöð.
Það sem eldhúsborðsumræður hafa ekki minkað, ef ég þekki mitt fólk rétt væri ágætt ef að fólk
velti þessum málum fyrir sér og svo tökum við þetta fyrir á fundi.

                                                                                               Halldór

19.01.10
Aðalfundur 4x3 verður haldinn föstudagskvöldið 29 Janúar kl 20:30
Venjuleg aðalfundarstörf sem og bollaleggingar um stefnur og framtíð klúbbsins.

Á eftir verður óformlegt afmælisbjórkvöld klúbbsins (blóm og kransar afþakkaðir) af tilefni tíu ára
tilveru 4x3

                                                                                                                Stjórnin



11.01.10
Nei sko hérna var víst einhver jeppasíða, spurning um að reyna að lífga aðeins upp á hana :)
Þurfum víst að fara hugsa um aðalfund og semja einhverjar níðvísur fyrir þorrablót.
Það er að segja ef við finnum einhverja meðlimi klúbbsins öðruvísi en sofandi :)
En já það er búið að vera rólegt yfir þessu en sjáum hvað við getum hrist upp á næstu misserum.
Það fer nú líka að styttast í 10 ára afmæli klúbbsins (12 feb) og kannski rétt að gera eitthvað af því
tilefni.

Meira örskömmu síðar..........