4x3 á flugi
Jeppa og sleðaklúbburinn 4x3 á flugi Vík í Mýrdal
Pósturinn.4x3 @ 4x3aflugi.com
Um okkur
09.03.09
Þá er komið að þessu árlega, eða félagsgjöldunum.
Á síðasta aðalfundi var ákveðið að þau yrðu óbreytt eða krónur 800 og 1300 fyrir þá sem eru með
rásina.
Að vanda eru menn beðnir að leggja þetta inn á 0317-26-2460 kt 480207-2460 fyrir
tuttugasta þessa mánaðar.                 


03.03.09
Þorraferð var vel heppnuð hjá flestum, gott veður, góður matur, skemmtun og nóg af snjó.
Er að flokka myndir og týna inn, en ef menn vilja stórar myndir af sér eða tækinu þá sendið þið mér
bara línu á halldoreytors@internet.is






















































19.02.09
Þorrablótsferð 4x3 verður farin helgina 28 feb-1 mars, að venju verður mikið um dýrðir, búið að semja
stjörnustríðsáætlanir, níðvísur og hrútspungarnir eru búnir að vera í vodkabaði í mánuð.
Þeir sem vilja sækja um að fá að kaupa miða skulu tala við háttvirta þorrablótsnefnd fyrr en síðar
nema þið viljið gista í gulum snjóskafli fyrir utan hús :)
Elli s:8960360, Guðjón s:8588179 eða Jósi s:8695681


26.01.09
Aðalfundur 4x3 verður haldinn á Ströndinni föstudagskvöldið 30 Janúar kl 20:30.
Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf ásamt öðru.
Drög verða lögð að þorrablóti og kannski lumar einhver á góðri veltusögu. :)
                                                                                                     
                                                                                                                 
Halldór
26.01.09
Þá líður að aðalfundi og það verður að viðurkennast að maður er búinn að vera ansi óvirkur síðasta árið.
Dottinn úr sambandi við allt og alla og er bara hálf týndur hérna í borginni.
Því finnst mér rétt að menn hugsi sinn gang, hvort einhverjir vilji taka að sér stjórnarsetu því ég sit ekki fast í stólnum ef menn telja sig hafa eitthvað til málana að leggja.
                                                                                                            
Halldór


28.10.08
Þá er kominn snjór og eitthvað eru menn að vakna upp af værum blundi :)
Tímasetning er kominn á Blágil, en það verður 22.11 og má búast við hörku ferð að vanda, margar kempur eru þegar búnar að skrá sig og menn farnir að snapa saman evrum fyrir bensíni :)
Þá verður væntanlega stefnt á annan í bjórkvöldi fljótlega en síðasta tilraun fór útum þúfur vegna tæknilegra mistaka :)                                           
                                                                                                                               
Halldór

































































Leyniþjónustan upplýsir....
..að Gaybar hafi verið sungið hástöfum á blóti
..að það hafi vantað bæði dólga og stjörnuleit
..að jarðskjálftar geti verið skemmtilegir
..að bræðurnir hafi boðið uppá ratleik
..að þar hafi ekki mátt milli sjá hvorir svindluðu meira dómarar eða keppendur
..að gamall GPS gúrú hafi klikkað illilega
..að til að redda sér hafi hann haft manna hæst um dómaraskandal
..að Game Over hafi komist alla leið
..að hann hafi þó eytt 100 á hundraði
..að Tacoma hafi..hmm..já...hann er þarna einhversstaðar
..að Elli hafi haldið uppi heiðri bensínbíla og verið fyrstur upp úr gjánni
..að hinn bensínbíllin...hmm. já...
..að allt hafi verið að gerast
..að jöklahópurinn hafi lent í smá brasi
..að maður kunni þó varla við að stríða þeim
..að gaman væri að sjá skífurnar úr vörubílunum í hópnnum
..að 20 tíma akstur er sennilega brot á öllum reglugerðum :)

..að menn séu farnir að efast um
kynhneigð 4x3 meðlima!
..að menn séu kannski bara svona
óöruggir um eigin kynhneigð!!
..að menn hefðu átt að vera
viðstaddir Blágil stjörnuleit!!!
..að það stefni í hörku blót
..að ólíklegustu menn ætli að mæta
..að í upphafi ferðar muni nefndin útdeila geisladiskum
..að á þeim verði rómantískar vísur eftir Serðir Monster
..að Lafi og Gýmir verði forsöngvarar
..að blótið verði sennilega bannað innan 18 :)

..að Elli sé að reyna að ná Dóra
..að staðan sé 3-2
..að Dóri sé með áhyggjur af þessu
..að Elli hafi kannski verið að hita upp fyrir þorrablót
..að ef maður veltir ekki einu sinni á ári, þá ekur maður of hægt :)
..að háttvirt þorrablótsnefnd sé kominn á flug
..að vegna rólegs árs þá verði bara rifjuð upp gömul afrek
..að Dóri mæti með vara tappa
..að boðið verði upp á eistna snittur
..að matvandir geti bara étið samloku og svala
..að útvöldum verði boðið í stjörnuleit :)

..að D Max heiti nú Dýr Max
..að þessvegna hafi hann bara verið geymdur inni í janúar :)
..að Siggi sé mátulega kátur
..að næsti bíll verði Toyota :)

..að vefstjórinn væri lélegur jeppi
..að hann vinni allavegana á Patrol hraða
..að það sé semsagt mjög hægt
..að það sé nú samt margt að gerast bak við tjöldin.
..að menn hafi komist í Blágil
..að það hafi þó kostað blóð svita og tár (og brotna og bogna hluti)
..að barbíinn hans Jósa sé komin á sölu.
..að honum leiðist að vera fastur
..að Orri hafi verið farin að neita að taka spottann úr.
..að það festi sig reyndar flestir í förum eftir tvo rússneska verksmiðutogara :)
..að Atla vanti hásingu
..að hann ætti bara að rífa undan Patrol
..að tröllið heiti nú orðið, Kerran
..að þetta finnst Atla ekki fyndið
..að appelsínur vaxi á lakasvæðinu
..að engin hafi þó viljað bita
..að Elli mæti ekki aftur í nýu úlpuni
..að komin sé tilaga um nýtt nafn á klúbbinn
..að það sé 4x3x2 eða 4x3x2x1
..að hættiði nú alveg :)







4x3 Bloggið
Tilkynningar og nýtt efni.
Nýtt 4x3 spjallborð
Skottúr inn í
Eldgjá
Mynd dagsins
Svona ef einhverjir efast um gæði Blágilsferða :)
Jeppasýning í
Fífunni hjá KK
Myndir dagsins
Sælan
Þorrablót 2009