4x3 á flugi.
Jeppa og sleðaklúbburinn 4x3 á flugi Vík í Mýrdal
4x3 á flugi er almennur jeppa og vélsleða klúbbur í Vík í Mýrdal.  Hann er opinn öllum áhugasömum um ferðamennsku á fjöllum í snjó og snjóleysi.
  Markmið klúbbsins eru að stunda heilbrigða og skemmtilega ferðamennsku upp um fjöll og firnindi, halda úti heimasíðu um herlegheitin og umfram allt, hafa gaman af lífinu.
  Félagsgjöld eru í lágmarki, en eru núna 500 kr á ári.  Þau eru notuð til að standa undir rekstri klúbbsins og til að halda úti heimasíðu.
  Aðalfundur er haldinn í Janúar ár hvert, þar sem upphafleg stjórn var vanalega endurkjörinn, hvort það var orðinn vani
eða að þeir voru bara svona góðir er síðan önnur saga :)
2006 voru loks mannabreytingar þegar meistari Oddsteinn hætti sem formaður, en hinir tveir sátu sem fastast.
  Klúbburinn stendur fyrir ferðum, myndakvöldum, þorrablóti og fleiri uppákomum sem félagsmönnum dettur í hug í
það skiptið.
  Stjórn skipa, Sigurður Elías Guðmundsson, Sigurður Gýmir Bjartmarsson og Halldór Ingi Eyþórsson sem jafnframt er
vefstjóri heimasíðunnar.
  Meðlimir eru núna rúmlega 50 sem telst að íslendingasið frábært miðað við höfðatölu :)
  Klúbburinn átti 5 ára afmæli 12 Feb 2005 (00-05) og er því búið að nota barnsskóna, sem voru sendir til stjórnar því þar eru tveir af þrem stjórnarmönnum (ríg) montnir pabbar.
                                                                                                                      Fyrirspurnir sendist á
4x3@4x3aflugi.com
Um okkur